

Sjúkraliði í dagdvöl - Boðaþing
Hrafnista Boðaþingi óskar eftir að ráða öflugan sjúkraliða í 80% starf í almenna dagdvöl
Dagdvöl sinnir einstaklingum sem búa á eigin heimili en þurfa stuðning, félagslega virkni og skipulagða dagþjónustu. Meginmarkmið í starfsemi deildarinnar er að rjúfa einangrun skjólstæðinga sinna og að efla þá í að taka þátt í daglegum athöfnum, þjálfa hug og hönd eins og geta hvers og eins býður.
Áhersla er lögð á að gera einstaklingnum kleift að búa heima og viðhalda sjálfsbjargargetu með því að bjóða upp á örvandi og hvetjandi starfsemi.
Í dagdvöl starfar öflugur hópur með fjölbreytta reynslu þar sem rík áhersla er lögð á uppbyggilegt samstarf og jákvæðan starfsanda. Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem áherslur eru m.a. öflugur mannauður, framúrskarandi samskipti, þróun á þjónustu og þar sem nýting og þróun á þjónustueflandi verkfærum eru í brennidepli þá viljum við endilega heyra frá þér.
- Lyfjaumsjón
- Heilsufarseftirlit og önnur tilfallandi verkefni í samvinnu við hjúkrunarfræðing
- Styðja, leiðbeina og hvetja skjólstæðinga í leik og starfi
- Samskipti við fjölskyldur skjólstæðinga
- Taka þátt í utanumhaldi á félagsstarfi, sbr. upplestri, föndri, leikfimi o.þ.h.
- Aðstoða við persónulegt hreinlæti
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Reynsla á sambærilegu starfi kostur
- Mötuneyti
- Samgöngustyrkur
- Heilsuræktarstyrkur
Íslenska




