Akureyri
Akureyri
Akureyri

Síðuskóli: Kennari í hönnun og smíði

Í Síðuskóla á Akureyri er laust til umsóknar 100% ótímabundið starf kennara í hönnun og smíði. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Leitað er að kennara sem hefur yfir að ráða kunnáttu til kennslu í smíðum, þekkingu til að efla skapandi listir í skólanum og sem er reiðubúinn til að efla teymi list- og verkgreinakennara skólans með faglegu samstarfi.

Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærni og er Grænfánaskóli. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.

Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla er æskileg, sérstaklega smíða eða handmenntarkennslu.
  • Geta til að kenna skapandi listir og nýta tækni til að efla nám nemenda.
  • Vald á fjölbreyttum kennsluaðferðum sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Áhugi og metnaður fyrir að vinna að og framfylgja stefnu skólans.
  • Góð þekking á kennslu- og uppeldisfræði.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Geta og vilji til að starfa í teymi með öðrum kennurum.
  • Góðir skipulagshæfileikar, sveigjanleiki og hæfni í samskiptum.
  • Vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi og áhugi á þróunarstarfi.
  • Reglusemi, stundvísi og samviskusemi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt9. apríl 2025
Umsóknarfrestur5. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bugðusíða, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar