Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús
Leikskólinn Sumarhús

Sérkennslustjóri í Sumarhúsum

Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða sérkennslustjóra til starfa. Leitað er að lausnamiðuðum og ráðagóðum einstaklingi með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.

Í leikskólanum er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Sköpun og leikurinn eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að koma að þróun leikskólans frá upphafi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati stoðþjónustunnar í leikskólanum í samráði við leikskólastjóra

  • Vinnur að einstaklingsnámskrá barna sem á þurfa að halda
  • Er faglegur umsjónarmaður stoðþjónustunnar í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans
  • Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra, foreldra/forráðamenn barna sem njóta stoðþjónustu í leikskólanum og situr fundi og viðtöl með þeim
  • Stýrir stoðþjónustuteymi leikskólans
  • Er tengiliður leikskólans við ýmsa fagaðila utan leikskólans
  • Er tengiliður leikskólans í þjónustu í þágu farsældar barna skv. lögum nr. 86/2021 og tekur þátt í þróun og innleiðingu laganna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari, þroskaþjálfi eða önnur sambærileg menntun
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi framhaldsmenntun í sérkennslufræðum eða öðru því sem nýtist í starfi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu á lögum um farsæld barna
  • Reynsla af stjórnun er æskileg
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla í starfi með leikskólabörnum
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur 
  • Líkamsræktarstyrkur 
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega.  Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar.
Auglýsing birt7. maí 2025
Umsóknarfrestur21. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vefarastræti 2-6, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar