

Kennarar og starfsfólk óskast til starfa
Leikskólinn Sumarhús, nýr leikskóli í Helgafellslandi í Mosfellsbæ, óskar eftir að ráða kennara til starfa í eftirfarandi stöður:
- Deildarstjóra
- Leikskólakennara
- Aðstoð í eldhúsi
Leitað er að lausnamiðuðum og drífandi einstaklingum með brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi leikskólastarfi.
Í leikskólanum er gert ráð fyrir 150 börnum á aldrinum 1-5 ára og mun skólinn starfa eftir heilsustefnunni þar sem heilsa og vellíðan nemanda, starfsfólks og samfélagsins alls verður í forgrunni. Sköpun og leikurinn eru einnig mikilvægur hlekkur í starfinu og er þetta frábært tækifæri fyrir metnaðarfulla einstaklinga til að koma að þróun leikskólans frá upphafi.
-
Uppeldi og menntuna barnanna, fylgjast með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega
-
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
-
Taka þátt í teymisvinnu innan skólans.
-
Virkt og gott samstarf við alla aðila skólasamfélagsins.
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari eða önnur sambærileg menntun
- Kennslureynsla á leikskólastigi er æskileg
- Framúrskarandi samskiptahæfni, lausnamiðuð hugsun og jákvætt viðmót
- Fagleg framkoma
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuviku er náð með 38 stunda vinnuframlagi vikulega. Starfsfólk safnar því tveimur stundum vikulega sem nýttir er sem frí á skráningardögum leikskóla Mosfellsbæjar












