Kópahvoll
Kópahvoll
Kópahvoll

Deildarstjóri óskast í Kópahvol

Leikskólinn Kópahvoll óskar eftir að ráða deildarstjóra

Kópahvoll er fjögurra deilda skóli með 74 börnum. Skólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla með áherslu á sjálfsprottna leikinn. Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starsmanna sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Stuðst er við hugmyndafræðina "uppbygging sjálfsaga - uppeldi til ábyrgðar". Unnið er með snemtæk íhlutun, vináttuverkefni Barnaheilla og lubbi finnur málbeinið. Leikskólinn er Réttindaskóli UNICEF - þegar skóli gerist Réttindaskóli ákveður hann að skulbinda sig við að gera réttindi barna að raunveruleika eftir bestu getu. Vinna með Barnasáttmálann hefur bein áhrif á líf barna og er mikilvægt að sú vinna fljóti sem mest á milli þeirra uppeldisstofnanna sem barnið sækir. Í Kópahvoli er unnið með flæði og lögð áhersla á samstarf barna og kennara þvert á deildir.

Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað við Víghólinn í Kópavogi sem er friðað leik- og útivistarsvæði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
  • Ábyrgð í starfi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af stjórnun er kostur.
  • Sjálfstæði, metnaður og skipulagshæfni.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.
  • Almenn, góð tölvukunnátta.

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Um fullt starf er að ræða eða eftir samkomulagi.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2025

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Þeir sem eru ráðnir til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.
Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef Alfreðs.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Allir einstaklingar óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Halla Ösp Hallsdóttir leikskólastjóri í síma: 4416501 netfangið: [email protected]
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu Kópahvols

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Auglýsing birt12. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Bjarnhólastígur 26, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar