

Viltu sjá um skólabókasafnið okkar?
Smáraskóli óskar eftir skólasafnkennara eða öðrum hæfum einstaklingi til að hafa umsjón með skólabókasafni skólans.
Við leitum að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi til þess að vinna með okkur að eflingu lesturs og læsis í skólanum
Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal í fallegu umhverfi nálægt íþróttamannvirkjum og fjölbreyttri og fallegri náttúru. Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar.
Umsjón með skólabókasafni
Aðstoð við lánþega og almenna þjónustu á bókasafni
Uppröðun og skráning bóka og annarra safngagna
Bókapantanir og innkaup
Samvinna við kennara og annað starfsfólk til að efla lestur og læsi í skólanum
Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri safnsins
Kennslurétttindi eru mikill kostur
Bókasafnsfræði eða önnur sambærileg menntun er kostur
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Áhugi á bókmenntum og menningu er kostur
Almenn tölvukunnátta
Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi












