Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli
Djúpavogsskóli

Umsjónar-, íþrótta- og sundkennari og stuðningsfulltrúi

  • Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á yngsta stigi í 100% stöðu, frá og með 1. ágúst 2025.
  • Laus er til umsóknar staða umsjónarkennara á miðstigi í 100% stöðu, frá og með 1. ágúst 2025
  • Laus er til umsóknar staða íþrótta- og sundkennara, ásamt annari kennslu í 100% stöðu, frá og með 1. ágúst 2025.
  • Laus er til umsóknar staða stuðningsfulltrúa í 50% stöðu, frá og með 1. ágúst 2025

Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með innan við 100 nemendur, þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, góða teymisvinnu og -kennslu og fjölbreytta kennsluhætti.
Skólinn vinnur eftir stefnum skólans, m.a. í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á uppbyggilega skólaþróun og velferð nemenda og starfsfólks. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á t.d. úti- og grenndarnám, fjölbreytta kennsluhætti, Leiðsagnarnám, Heilsueflandi skóla, Uppeldi til ábyrðgar, Byrjendalæsi, samþættingu, núvitund og andlegt heilbrigði og sjálfbærni. Lögð er rík áhersla á teymisvinnu og teymiskennslu.

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum sem eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjónarkennari:

  • Annast kennslu nemenda samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámsskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda i samráði við samkennara og skólastjórnendur.
  • Að annast umsjón með nemendahópi. 
  • Að taka virkan þátt í teymiskennslu, teymisvinnu og mótun og þróun skólastarfsins með velferð nemenda að leiðarljósi.

Íþrótta- og sundkennari:

  • Að annast sund- og íþróttakennslu nemenda í skólanum, ásamt annarri kennslu. 

Allir kennarar: 

  • Að vinna námsmat og annað á Mentor.
  • Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og stuðla að velferð þeirra samstarfi við foreldra og annað starfsfólk. 
  • Vinna að þróun skólastarfsins með stjórnendum og öðru starfsfólki í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.

Stuðningsfulltrúi: 

  • Leitað er að aðila með hæfni til að starfa með nemendum á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg. Um 50% stöðu er að ræða. 
Menntunar- og hæfniskröfur

Kennarar: 

  • Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
  • Góð tök á íslensku í töluðu og rituðu máli. 
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi
  • Áhugi að taka þátt í teymistarfi og þróun náms- og kennsluhátta. 

Stuðningsfulltrúi: 

  • Menntun sem nýtist í starfi æskileg. 
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg. 
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður í starfi. 
  • Jákvæðni og sveigjanleiki. 
Auglýsing birt30. maí 2025
Umsóknarfrestur9. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Varða 6, 765 Djúpivogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar