
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg hefur verið starfræktur frá 2. nóvember 1999. Deildirnar eru 6 talsins og heita Álfaberg, Flikruberg, Móberg, Silfurberg, Stuðlaberg og Tröllaberg.
Stefna leikskólans er að veita hverju barni umhyggju, stuðning og öryggi í gegnum þroskandi og heilsueflandi umhverfi.
Markmiðin okkar eru:
Barnið er alltaf í brennidepli.
Skapa umhverfi sem eflir alhliða þroska barnsins.
Nám barnsins fer fram í gegnum leikinn.
Hafa málhvetjandi umhverfi, til að stuðla að eðlilegri færni í íslensku.
Leikskólinn sé heilsueflandi.
Á leikskólanum ríkir jákvæðni, umhyggja, virðing og framsækni.
Börnin öðlast festu og öryggi í leikskólanum.
Allt starf leikskólans sé í nánu samstarfi við foreldra.
Foreldrar séu okkar samstarfsaðilar í umönnun barnanna og við veitum þeim stuðning í foreldrahlutverkinu.

Leikskólakennarar óskast á Hulduberg
VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ LEIKSKÓLAKENNURUM Í LEIKSKÓLASTARF FULLT STARF SEM GETUR HAFIÐ STÖRF 11. ÁGÚST.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Í Huldubergi eru 102 börn á aldrinum 1 árs til 4ja ára. Sérstakar áherslur í leikskólastarfinu eru: Tilfinningalegt öryggi, umhyggja, umönnun, hlýja, góðvild, festa, sveigjanlegt dagskipulag, streitulaust umhverfi og aldurshæfandi örvun.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgist vel með velferð barnanna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar, gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara með áherslu á leikskólastarf eða aðra sambærilega menntun.
- Áhugi, menntun, reynsla og hæfni í starfi með ungum börnum.
- Sjálfstæði og metnaður í vinnubrögðum.
- Framúrskarandi samskiptafærni.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt3. júní 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Lækjarhlíð 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari óskast í haust
Kópahvoll

Landakotsskóli auglýsir stöðu umsjónarkennara
Landakotsskóli

Leikskólinn Ásar - starfsfólk óskast
Hjallastefnan leikskólar ehf.

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Arnarberg
Hafnarfjarðarbær

Viltu bætast í stjórnendateymið okkar ?
LFA ehf.

Leikskólar LFA - Leikskólinn Bakkakot - Viltu vera með á nýju skólaári ?
LFA ehf.

Leik- eða grunnskólakennari í 1. bekk í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari / leikskólaleiðbeinandi
Ævintýraborg Vogabyggð

Kennari - Leikskólinn Smáralundur
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær