LFA ehf.
LFA ehf.
LFA ehf.

Viltu bætast í stjórnendateymið okkar ?

Leikskóli LFA óska eftir deildarstjóra til starfa.

LFA er sjálfstætt starfandi leikskóli á tveimur starfsstöðvum í Grafarvogi.

Bakkakot er þriggja deilda leikskóli sem vistar 55 börn og óskar eftir að ráða deildarstjóra á 16 barna deild.

Við hjá LFA leggjum ríka áherslu á málstarf og félagsþroska um leið og við viljum efla sjálfsöryggi barna. Skólinn vinnur markvisst með málörvun, réttindi barna, lýðræði og jafnrétti.

Markmið LFA er að skila til samfélagsins sjálfsöruggum einstaklingum með bjarta framtíð sem geta tjáð óskir sínar, þarfir og tilfinningar.

Lögð er áhersla á góðan starfsanda sem einkennist af virðingu, umburðarlyndi, gleði og jákvæðni. Hjá LFA eru ríkuleg tækifæri til starfsþróunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
  • Er hluti af stjórnendateymi leikskólans
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara*
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi t.d uppeldis og menntunarfræði, sálfræði, félagsráðgjafi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Faglegur metnaður
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð færni í íslensku
Fríðindi í starfi
  • Frítt fæði á vinnutíma
  • 36 klst. vinnuvika
  • Frí í dymbilviku
  • Fatastyrkur
  • Afsláttur á leikskólagjöldum
Auglýsing birt25. júní 2025
Umsóknarfrestur4. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bakkastaðir 77, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar