
Sérkennsla/Atferlisþjálfun
Einstaklingur með háskólamenntun á sviði leikskólasérkennslu, þroskaþjálfunar eða BS í sálfræði óskast til starfa við sérkennslu/atferlisþjálfun í leikskólanum Sunnuási.
Við óskum eftir starfsmönnum í krefjandi og spennandi starf. m.a. er um að ræða atferlisþjálfun barns með einhverfu. Starfsmaðurinn fær leiðsögn við að beita aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar við þjálfun barnsins. Markviss ráðgjöf og eftirfylgd í starfi auk námskeiða á vegum Greiningarstöðvar. Unnið er í nánu samstarfi við sérkennslustjóra, foreldra, atferlisráðgjafa og samstarfsfólk í leikskólanum.
Sunnuás er 6 deilda leikskóli sem er staðsettur við Laugarásveg 77. Börnin eru á aldrinum 1 til 6 ára. Leikskólinn Sunnuás vinnur í anda Reggio Emilia.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing -sköpun -gleði.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Agnes Ólafsdóttir: [email protected]
Að veita barni sérkennslu/atferlisþjálfun.
Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
Að vinna einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir.
Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, Bs.c í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af sérkennslu æskileg. Reynsla og þekking á atferlisþjálfun æskileg. Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi. Góð íslenskukunnátta
- 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
- Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík
- Íþróttastyrkur eftir 6 mánuði í starfi
- Frítt á söfn í Reykjavík og Borgarbókasafnið
- Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.












