

Leikskóli Húnabyggðar
Leikskóli Húnabyggðar óskar eftir að ráða leikskólakennara/leiðbeinanda
Um er að ræða tvær 100 % stöður
100% staða frá og með 3. nóvember og er umsóknarfrestur um hana til og með 31. október.
100% staða frá og með 17. nóvember 2025 og er umsóknarfrestur um hana til og með 10. nóvember.
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
- Tilbúinn að taka þátt í öflugri starfsþróun og mótun leikskólans.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá.
● Leikskólakennaranám eða annað kennaranám sem veitir leyfisbréf til kennslu.
● Starfsmaður geti sýnt frumkvæði, sjálfstæði og hafi faglegan metnað fyrir starfi sínu.
● Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti.
● Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi.
● Góð íslenskukunnátta, skilyrði.
● Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.












