Norðurál
Norðurál
Norðurál

Sérfræðingur í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu

Norðurál leitar að hæfum og metnaðarfullum einstaklingi til að ganga til liðs við upplýsingatæknideild fyrirtækisins í starf sérfræðings í vöruhúsi gagna og gagnavinnslu. Eitt af megin hlutverkum viðkomandi er ábyrgð á uppbyggingu, viðhaldi og þróun vöruhúsa gagna, ásamt því að vinna úr gögnum til að styðja við ákvarðanatöku fyrirtækisins. Verkefnin eru áhugaverð og fjölbreytt í lifandi starfsumhverfi þar sem metnaður og fagmennska eru í fyrirrúmi.

Starfið heyrir undir fjármálasvið fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

·       Uppbygging og viðhald á vöruhúsum gagna

·       Gagnavinnsla og greining gagna

·       Hönnun og þróun gagnalíkana og gagnagrunnskerfa

·       Samvinna við aðrar deildir til að tryggja rétta og skilvirka notkun gagna

·       Notendaþjónusta og lausn tæknilegra vandamála

Menntunar- og hæfniskröfur

·       Háskólamenntun í tölvunarfræði, upplýsingatækni eða sambærilegt nám

·       Reynsla af vöruhúsum gagna og gagnavinnslu

·       Þekking á gagnalíkönum og gagnagrunnskerfum

·       Þekking á Tableau er kostur

·       Þekking á SAP er kostur

·       Sterk öryggisvitund, frumkvæði og fagleg vinnubrögð

·       Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi

·       Þjónustulund og geta til að vinna sjálfstætt

Auglýsing birt19. júní 2025
Umsóknarfrestur3. júlí 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grundartangahöfn lóð 12, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SAPPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar