
Íslensk erfðagreining
Íslensk erfðagreining leitar að góðu fólki sem hefur hæfileika og metnað til að leggja sitt á vogaskálarnar í þágu vísinda og hefur upp á að bjóða gott starfsumhverfi og mikla möguleika á starfsþróun.

Umsjónarmaður rannsóknagagna
Við leitum að skipulögðum einstaklingi til að styðja við eftirlit og utanumhald með rannsóknagögnum innan fyrirtækisins. Starfið felur í sér samhæfingu gagnaflutninga, umsýslu með rannsóknaleyfi og umsjón með skuldbindingum varðandi notkun gagna. Viðkomandi mun jafnframt taka virkan þátt í að móta og þróa verklag og ferla sem styðja við skilvirka og örugga meðhöndlun gagna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með gagnaflutningum:
Fylgjast með og samhæfa flutning gagna inn og út úr fyrirtækinu, með það að markmiði að tryggja að samningar, lög, reglugerðir og aðrar skuldbindingar séu virtar. - Umsýsla rannsóknaleyfa:
Halda utan um rannsóknaleyfi, tryggja að öll skjöl séu til staðar, uppfærð og aðgengileg þegar þörf krefur. - Eftirfylgni og forgangsröðun:
Eftirfylgni með gagnaflutningum sem tengjast rannsóknaleyfum. Tryggja að verkefni séu unnin tímanlega og í samræmi við forgangsröðun. - Þróun ferla og verklags:
Taka þátt í að skilgreina og bæta innri ferla og verkferla tengda rannsóknagögnum. - Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólanám á sviði tölvunarfræðinnar eða sambærilegum greinum
- Góð skipulagsfærni og áhugi á verkefnastjórnun.
- Tæknilegur bakgrunnur sem gerir viðkomandi kleift að skilja gagnavinnslu, hugbúnaðarlausnir og tengda innviði.
- Mjög góð samskiptafærni bæði á íslensku og ensku, munnlega og skriflega.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra.
- Frumkvæði og áhugi á að móta og bæta vinnulag og ferla.
Fríðindi í starfi
- mötuneyti á staðnum
- næg bílastæði
- íþróttastyrkur
Auglýsing birt12. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Sturlugata 8, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar