
Origo hf.
Origo er nýsköpunarfyrirtæki sem veitir þríþætt framboð í upplýsingatækni: rekstrarþjónustu, hugbúnað og notendabúnað. Við trúum að „betri tækni bæti lífið“ og erum stöðugt að þróa lausnir með það markmið að tryggja árangur viðskiptavina okkar. Origo er leiðandi samstarfsaðili fyrirtækja, opinberra aðila og einstaklinga á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 500 einstaklingar, þar af yfir 200 í hugbúnaðartengdri starfsemi.
Það er stefna Origo að vera fyrsta val hjá einstaklingum sem trúa því að betri tækni bæti lífið. Við kunnum að meta einlægni, forvitni og lausnarmiðað hugarfar í bland við alls konar tæknifærni. Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvors annars og þróast áfram.
Saman breytum við leiknum!

Ert þú sérfræðingur í tæknimálum?
Tækniborð & vettvangsþjónusta
Við leitum að þjónustulundaðri manneskju, sem er hress og metnaðarfull, til að sinna fjölbreyttum verkefnum ásamt öflugu teymi tæknifólks í Þjónustumiðju Origo. Viðkomandi þarf að geta tileinkað sér nýjungar og vera tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni í hröðu og síbreytilegu umhverfi. Hlutverk sérfræðings er að aðstoða viðskiptavini Origo við tæknilegar áskoranir bæði í fjarþjónustu og/eða vettvangsþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn tæknileg notendaþjónusta
- Móttaka, greining og úrlausn vandamála
- Uppsetningar á tölvu- og prentbúnaði
- Þátttaka í hópavinnu innan og milli deilda
- Samvinna með kerfisstjórum og öðru tæknifólki
- Þátttaka í innleiðingum og sérverkefnum
- Samskipti við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund
- Góðir samskiptaeiginleikar
- Skipulagshæfni og útsjónarsemi
- Góð þekking á virkni tölva
- Góð þekking á Windows stýrikerfum
- MacOS og Linux þekking er kostur
- Reynsla af helstu snjalltækjum, Android og iOS
- Menntun sem nýtist í starfi og tæknilegar vottanir t.d. Microsoft gráður, eru kostur en ekki nauðsynlegt.
Fríðindi í starfi
- Framúrskarandi vinnuaðstaða
- Líkamsrækt og æðislegt mötuneyti
- Öflugt félagslíf og mikill sveigjanleiki
- Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
- Frábær velferðar-og heilsustefna
Auglýsing birt10. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaAndroidFrumkvæðiHreint sakavottorðiOSJákvæðniLinuxMac OSMannleg samskiptiSkipulagWindowsÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Við leitum að UT sérfræðingi
Myllan

Sérfræðingur á rekstrarvakt
Reiknistofa bankanna

Origo leitar að sérfræðingi í stjórnun og öryggi notendabúnaðar.
Origo hf.

Umsjónarmaður rannsóknagagna
Íslensk erfðagreining

Sérfræðingur net og fjarskiptalausna
Landsnet hf.

Markaðsstjóri netmiðla
X18

Ráðgjafi í tækniteymi
dk hugbúnaður ehf.

Partýfulltrúi - Fullt starf
Rent-A-Party

Notendavænn sérfræðingur
Rarik ohf.

Systems Administrator / Kerfisstjóri
RVX Productions ehf.

Vilt þú gæta að öryggi fjarskipta?
Míla hf

Klárir Microsoft kerfisstjórar/geimfarar
Atmos Cloud