Origo hf.
Origo hf.
Origo hf.

Origo leitar að sérfræðingi í stjórnun og öryggi notendabúnaðar.

Ert þú lausnamiðaður tæknisérfræðingur með brennandi áhuga á öryggi og stjórnun notendabúnaðar? Langar þig að vinna með öflugu teymi sem þjónustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og hefur raunveruleg áhrif á öryggi og skilvirkni í upplýsingatækni? Þá viljum við heyra frá þér!

Við leitum að sérfræðingi sem mun þróa áfram og reka lausnir fyrir öruggan og skilvirkan rekstur tækja í blönduðu Microsoft, Linux og Mac umhverfi. Starfið felur í sér náið samstarf við viðskiptavini og teymi sérfræðinga innan Origo, með áherslu á stöðugar umbætur, sjálfvirknivæðingu og öryggisvitund.

Viðkomandi mun vinna með lausnir á borð við Microsoft Intune, Defender for Endpoint, Trend Micro, Palo Alto ásamt fleiri lausnum, sem gegna allar lykilhlutverki í rekstri og öryggisstýringu hjá viðskiptavinum Origo.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón og þróun á lausnum fyrir stjórnun og öryggi notendabúnaðar (t.d. Microsoft Intune, Defender for Endpoint, Autopilot, HCL BigFix, Trend Micro og Palo Alto)

  • Innleiðing og viðhald á stefnum og reglum fyrir tæki og notendur (compliance policies, configuration profiles, dreifing hugbúnaðar)

  • Greining og viðbrögð við öryggisatvikum tengdum notendabúnaði

  • Þátttaka í mótun framtíðarsýnar og bestunar á lausnum fyrir notendabúnað hjá Origo og viðskiptavinum sem og einföldun á núverandi rekstrarumhverfi

  • Þróun sjálfvirkra ferla og skriftur (t.d. PowerShell) til að auka skilvirkni og öryggi

  • Ráðgjöf og fræðsla til viðskiptavina og samstarfsfólks um bestu starfsvenjur í öryggi og stjórnun notendabúnaðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti 5 ára reynsla af stjórnun og/eða öryggi notendabúnaðar í Microsoft umhverfi eða sambærilegum lausnum

  • Djúp þekking á Microsoft Intune, Microsoft Defender for Endpoint og M365 öryggislausnum

  • Þekking á HCL BigFix og Trend Micro lausnum er kostur en ekki krafa

  • Þekking á sjálfvirknivæðingu með PowerShell

  • Reynsla af innleiðingu og viðhaldi á öryggisstefnum og reglum fyrir notendabúnað

  • Lausnamiðuð og skipulögð vinnubrögð, með áherslu á einföldun og stöðlun

  • Góð samskipta- og ráðgjafahæfni

  • Tæknilegar vottanir (t.d. MS-102, SC-300, MD-102) eru kostur

Fríðindi

  • Framúrskarandi vinnuaðstaða

  • Öflug velferðar-og heilsustefn

  • Líkamsræktaraðstaða

  • Frábært mötuneyti

  • Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.

Við sköpum öruggt forskot með tækni og hugviti. Með snjöllum og öruggum lausnum hjálpum við fyrirtækjum og stofnunum að öðlast forskot í stafrænum heimi sem er á fleygiferð. Hjá okkur starfa um 260 manns sem vinna saman að því að skapa betri tækni sem bætir líf fólks. Við leggjum áherslu á liðsheild, fagmennsku og stöðuga þróun.

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum til að læra meira um vinnustaðinn.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Nánari upplýsingar veitir Arnþór Björn Reynisson, forstöðumaður Veitulausna.
Netfang: [email protected]
Linkedin: https://www.linkedin.com/in/arnthorbjornreynisson

Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur25. júní 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar