

Notendavænn sérfræðingur
Við leitum að sérfræðingi í notendaþjónustu með ríka þjónustulund sem er til í að aðstoða starfsfólk okkar í síbreytilegum heimi tækninnar. Ert þú lausnamiðað og þjónustuglatt tæknitröll með góða þekkingu á Microsoft-skýjaumhverfinu? Tengdu þig við okkur og taktu þátt í innleiðingu þriðju orkuskiptanna.
Þetta er starf þarf sem góð samskipti leika lykilhlutverk. Við leitum að umsækjendum með framúrskarandi þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum og helst reynslu af notenda-/vettvangsþjónustu. Þekking á Office365 og Microsoft restrarhugbúnaði auk Android og IOS stýrikerfa er mikilvæg og Microsoft-gráður og aðrar tæknilegar vottanir, menntun eða reynsla eru góður kostur. Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir jákvæðu hugarfari og öguðum og sjálfstæðum vinnubrögðum.
Þjónusturáðgjafar okkar þurfa að búa yfir afbragðsfærni í samskiptum og hafa jákvæðni, frumkvæði og metnað að leiðarljósi í störfum sínum. Öguð vinnubrögð, skipulagshæfni og góð tölvukunnátta skipta einnig máli, sem og áhugi á stafrænum lausnum. Mikilvægt er að hafa góða færni í að tjá sig í ræðu og riti, á íslensku og ensku. Reynsla af notkun CRM-kerfis er kostur.
