

Tölvunarfræðingur með reynslu af utanumhaldi og samþættingu tölvukerfa / gagnagrunna
GeoForm leitar að jákvæðum og framtakssömum starfsmanni í stöðu tölvunarfræðings eða verkfræðings hjá framtíðarþenkjandi fyrirtæki í mikilli sókn. Fyrirtækið er í örum vexti á sviði upplýsingatækni ,gagnaöflunar og úrvinnslu gagna og sinnir fjölbreyttri tækniráðráðgjöf og þjónustu á sviði landupplýsinga fyrir sveitafélög, veitufyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Sem tölvunarfræðingur hjá GeoForm munt þú sinna fjölbreyttum og spennandi verkefnum sem snúa að rekstri og uppbyggingu gagnagrunna; samþættingu tölvukerfa og skýjaþjónusta; rekstri tölvukerfa og ýmsu fleira fyrir bæði GeoForm og viðskiptavini þess.
Þú munt vinna með fagaðilum bæði innanhúss sem utan í jákvæðu og metnaðarfullu umhverfi. Starfsstöðvar eru á höfuðborgarsvæðinu með möguleika á að vinna að hluta í fjarvinnu skv. samkomulagi. Hafir þú áhuga á að móta framtíðina með okkur á sviði landupplýsinga og upplýsingatækni þá endilega sendu okkur umsókn.
Við leitum að einstaklingi sem eru jákvæður, framsýnn, mjög tæknilega sinnaður, umbótaþenkjandi og þjónustulundaður.
Menntun:
- Tölvunarfræði, hugbúnaðar- eða tölvunarverkfræði, forritun eða önnur menntun, þekking og reynsla sem nýtist í starfi
Hæfniskröfur:
- Reynsla af notkun Python, Javascript, SQL, Azure, Git, API
- Góð þekking á utanumhaldi og uppbyggingu gagnagrunna (T.d. Postgres, Microsoft SQL, Oracle eða sambærilegu).
- Reynsla af landupplýsingahugbúnaði er mikill kostur en ekki krafa (t.d. ESRI ArcGIS, QGIS) eða öðrum sambærilegum landupplýsingahugbúnaði.
- Lausnamiðaður einstaklingur með mjög góða tölvufærni.
- Nákvæmni og vönduð vinnubrögð.
- Góð þjónustulund, umbótasinnaður, jákvætt hugarfar og samskiptahæfni.
- Þekking og reynsla af notkun gervigreindar er mikill kostur
- Kostur ef viðkomandi hefur reynslu og þekkingu á netöryggismálum og öryggisafritun.













