

Við leitum að hugbúnaðarsérfræðingum
Við leitum að hugbúnaðarsérfræðingum sem vilja byggja lausnir framtíðarinnar
Hugvit & tækni hjá Orkuveitunni leitar að dúerum – forriturum og hugbúnaðarsérfræðingum sem brenna fyrir því að skapa, þróa og koma lausnum í framkvæmd. Ef þú hefur sterka tækniþekkingu, þorir að taka ábyrgð og vilt vinna að kerfum sem skipta máli fyrir samfélagið, þá erum við að leita að þér.
Þú munt taka þátt í að þróa og viðhalda flóknum hugbúnaðarkerfum sem styðja við innviði Orkuveitunnar og dótturfélaga. Þú vinnur náið með arkitektum og teymum að því að útfæra hönnun fyrir örugg, stöðug og notendavæn kerfi og færð að sýna hvað þú getur.
Hver er þessi dúer sem við leitum að?
-
Þú hefur gaman af því að kóða, samþætta og smíða hugbúnað.
-
Þú skilur kerfisuppbyggingu og átt auðvelt með að tengja saman lausnir.
-
Þú hefur auga fyrir gæðum og vilt skilja “hvers vegna” hlutirnir eru eins og þeir eru.
-
Þú ert ekki bara hugsuður, þú ert framkvæmdaaðili með drif og metnað.
-
Þú ert með menntun eða reynslu sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði eða annað sambærilegt.
-
Smíði og viðhald á hugbúnaðarkerfum og veflausnum.
-
Samþætting kerfa og vefþjónusta.
-
Náin samvinna við arkitekta og notendur við útfærslu lausna.
-
Sjálfvirknivæðing, prófanir og útgáfustýring með DevOps verkfærum.
-
Samvinna við ytri samstarfsaðila þar sem þarf.











