
Origo ehf.
Forskot á framtíðina.
Tilgangur Origo er að skapa öruggt forskot með tækni og hugviti.
Hjá Origo starfar öflugur hópur fólks með sérþekkingu sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar ráðgjöf og þjónustu til að ná árangri í sinni starfsemi. Við snertum með starfsemi okkar marga mismunandi þætti samfélagsins, fyrirtæki og stofnanir. Við bjóðum upp á öflugt lausnaframboð, allt frá stafrænni umbreytingu, kerfisrekstri og þjónustu í upplýsingaöryggi og viðskiptalausnum. Við bjóðum enn fremur upp á sérhæfðara lausnaframboð fyrir mannauðsdeildir og orkugeirann.
Við tengjum saman fólk, hugmyndir og tækni til að færa samfélagið áfram.
Það er stefna Origo að vera fyrsta val hjá einstaklingum sem trúa því að betri tækni bæti lífið. Við kunnum að meta einlægni, forvitni og lausnarmiðað hugarfar í bland við alls konar tæknifærni. Við byggjum á liðsheild og leggjum áherslu á að ýta undir styrkleika hvors annars og þróast áfram.
Saman breytum við leiknum!

Sérfræðingur í gagnagreiningu
Eru gagnavísindi eitthvað fyrir þig?
Hefur þú brennandi áhuga á gögnum og nýtingu gagnavísinda til að aðstoða fyrirtæki við að ná betri árangri?
Vilt þú vinna með stærstu fyrirtækjum landsins við að nýta sér hraðar tækniframfari á sviði gagnavinnslu og gervigreindar?
Origo hefur ofurtrú á auknu mikilvægi gagnadrifinna lausna og við viljum vaxa hratt á sviði viðskiptagreindar og gagnadrifinna lausna á næstu misserum. Við leitum því að metnaðarfullum einstaklingum til að taka þátt í þessari uppbyggingu með okkur.
Við leggjum mikla áherslu á þekkingaröflun starfsfólks og þetta því frábært tækifæri fyrir þau sem vilja komast í vinnuumhverfi þar sem ávinningur viðskiptavina og starfsþróun fer saman.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tölvunarfræði, gagnavísindi eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi
Sjálfstæði og frumkvæði eru mjög mikilvægir eiginleikar
Reynsla af gagnatengdri vinnu í Azure er mikill kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þróun lausna sem auka verðmæti vöruframboðs Origo
Hönnun, smíði og viðhald gagnalausna í Azure
Þátttaka í útfærslum á sviði gervigreindar
Samskipti við vörustjóra og aðra hagsmunaðila innan Origo
Fríðindi í starfi
Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
Frábært mötuneyti
Sveigjanlegur vinnutími
Öflug velferðar-og heilsustefna
Framúrskarandi vinnuaðstaða
Auglýsing birt14. nóvember 2022
Umsóknarfrestur29. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AgileFrumkvæðiGagnagreiningHönnun gagnagrunnaSQL
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Office & Operations Coordinator
Treble Technologies

Vatnsaflssérfræðingur
EFLA hf

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring
Íslandsbanki

Innkaupastjóri/Purchasing Manager
Nicopods ehf

Forstöðumaður Executive MBA náms í viðskipta- og hagfræðideild
Háskólinn í Reykjavík

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
SnerpaPower

Business Central Specialist
Embla Medical | Össur

Hönnun umferðarmannvirkja
EFLA hf

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Product Designer / Engineer | Össur
Embla Medical | Össur

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður