

Sérfræðingur í þjálfun skólabarna; þroskaþjálfi/iðjuþjálfi/atferlisfræðingur.
Okkur vantar sérfræðing í stoðteymi Salaskóla
Í Salaskóla vinna kennarar og aðrir sérfræðingar saman að kennslu og þjálfun nemenda og við undirbúning og skipulagningu náms, kennslu og þjálfunar. Skólaþróun hefur verið ríkur þáttur í starfinu og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti og þverfaglega nálgun við nemendur. Rauður þráður í starfi skólans er að nemendur fái að njóta sín í námi og leik og að þeim líði vel í skólanum. Skólinn var stofnaður árið 2001 og á næsta skólaári verða nemendur um 500 í 1. til 10. bekk. Við skólann starfa um 100 starfsmenn.
Helstu verkefni snúa að þjálfun og vinnu með nemendur með sértækar þarfir, svo sem atferlisþjálfun, þjálfun í félagsfærni, gerð einstaklingsáætlana og ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila. Viðkomandi mun vera í beinni vinnu með nemendum og vinna í þéttu teymissamstarfi við kennara og aðra samstarfsaðila að námi, þroska og velferð nemenda. Auk þess er foreldrasamstarf mikið.
Ráðningartími og starfshlutfall
- Ráðning þarf að vera sem fyrst.
- Um 100% starf er að ræða, tímabundið til loka skólaárs v/ forfalla en með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi sérfræðimenntun.
- Reynsla af vinnu með börnum á grunnskólaaldri æskileg.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð nálgun á viðfangsefni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni.
- Samstarfshæfni, skipulagshæfileikar og stundvísi.
- Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans og taka þátt í þverfaglegu teymissamstarfi.
- Vera tilbúin/n í uppbyggileg samskipti við foreldra og nærsamfélag, með velferð nemenda að leiðarljósi.
- Hafa gott vald á íslensku.
Nánari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Öll sem ráða sig til starfa hjá grunnskólum Kópavogs þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.
Upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri, [email protected], gsm 840-2393.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar sveitarfélagsins.












