

Við leitum að sérkennara sem vill sjá börn blómstra
Við í leikskólanum Austurkór leitum að metnaðarfullum og umhyggjusömum einstaklingi til að ganga til liðs við sérkennsluteymið okkar. Starfið felst í að veita einstaklingsmiðaðan stuðning við börn sem þurfa sérstaka aðstoð í leik og námi. Við leytum eftir starfmanni í 80% starf.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum tiltekins stéttafélags.
Aðeins einstaklingar með menntun koma til greina.
Starfið er laust strax og er 80% staða í boði
Helstu verkefni og ábyrgð eru að sinna umönnun, kennslu og þjálfun barna í takt við þarfir þeirra, setja upp einstaklingsáætlanir og endurmeta þær. Vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa eftir atvikum. Starfið er unnið í samstarfi við sérkennsluteymi skólans, sérkennslustjóra og deildastjóra viðkomandi deildar.
Kennarmenntun, þroskaþjáfunarmenntun eða önnur uppeldismenntun áskilin
Frír matur, frítt í sund (eftir að hafa unnið í 3 mánuði), stytting vinnuviku og vetrar, páska og jólafrí.












