atNorth
atNorth

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum / Control SME

Viltu vera í lykilhlutverki í að þróa og efla eftirlits- og stýrikerfi hjá atNorth á Fitjum?

Við leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur mikinn áhuga á skipulagningu og stýringu verkefna, nær að vinna vel með ólíkum hópum og fá fólk með sér, en setur jafnframt skýrar kröfur um gæði og framkvæmd.

Í þessu hlutverki verður þú lykilaðili í að tryggja áreiðanlegan rekstur og stöðuga þróun stjórn- og eftirlitskerfa gagnaversins, með ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi og hagræðingu tæknilausna sem styðja við öruggan og samfelldan rekstur innviða.

Um starfið

Í kröfuhörðu umhverfi gagnavera, þar sem kröfur um rekstraröryggi, stöðugleika og áreiðanleika eru í fyrirrúmi, gegnir sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum mikilvægu hlutverki. Starfið felur í sér umsjón með stjórn-, eftirlits- og mælikerfum starfseminnar, þar á meðal PLC-, SCADA- og BMS-kerfum, auk þess að tryggja öruggan og samfelldan rekstur þeirra.

Sérfræðingurinn ber ábyrgð á uppsetningu, viðhaldi, bilanagreiningu og þróun kerfanna, ásamt því að leiða tæknilegar umbætur og styðja við rekstur og viðskiptavini með faglegri þjónustu og lausnamiðaðri nálgun.

Lögð er áhersla á að öryggi og gæði séu órjúfanlegur hluti af daglegri framkvæmd, með skipulögðum og öguðum vinnubrögðum.

Hefur þú áhuga?

Ef þú hefur áhuga á tækni, stjórn- og eftirlitskerfum og vilt taka þátt í að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur gagnavera, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppsetning, eftirlit og viðhald á tæknibúnaði
  • Umsjón og eftirlit með dreifikerfum raforku
  • Vinna að endurbótum og uppfærslu verkferla með teyminu
  • Aðstoða viðskiptavini við úrslausn beiðna
  • Eign og viðhald á stjórn- og skjákerfum.
  • Skipuleggja og framkvæma fyrirbyggjandi og leiðréttandi viðhald.
  • Sjá til þess að stýrikerfi séu áreiðanleg og tiltæk.
  • Viðhald PLC stýringa og annarra stjórntækja.
  • Meta og framkvæma firmware uppfærslur þegar þær eru samþykktar.
  • Kvörðun og sannprófun mælitækja
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun eða tækninám í rafiðn, tækni, eða verkfræði.
  • Sveinspróf eða reynsla af tengivinnu.
  • Reynsla af Schneider PME, EBO og Janitza Gridvis er kostur
  • Þekking á PLC og SCADA/BMS kerfum
  • Góður skilningur á netkerfum
  • Þekking á samskiptastöðlum eins og Modbus serial, Modbus TCP/IP, Profibus og Profinet
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna þvert á teymi
  • Sjálfstæð skipulögð vinnubrögð og frumkvæði
  • Umbótahugarfar, örygggisvitund og þjónustulund
  • Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur3. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fitjar 1, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar