Sérfræðingur í launavinnslu
Flugfélagið Atlanta ehf. leitar eftir öflugum og nákvæmum einstaklingi til að taka við starfi sérfræðings í launavinnslu hjá félaginu.
Um er að ræða fjölbreytt starf við laun ásamt öðrum verkefnum sem ráðast af reynslu og áhugasviði þess sem verður ráðin(n).
Dæmi um önnur verkefni eru m.a. mannauðsmál og/eða greiningarvinna.
-
Launavinnsla
-
Umsjón með framfylgd kjarasamninga
-
Samskipti við starfsfólk og opinbera aðila
-
Aðkoma að jafnlaunamálum
-
Umbætur og eftirfylgni með ferlum við launavinnslu
-
Önnur tilfallandi verkefni
-
Reynsla af launavinnslu er nauðsynleg
-
Menntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla og þekking á túlkun kjarasamninga
-
Þekking á Kjarna mannauðs- og launakerfi er kostur
-
Mjög góð kunnátta og færni í Excel
-
Góð enskukunnátta í ræðu og riti
-
Öguð vinnubrögð, nákvæmni og ábyrgðarkennd
-
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
-
Hreint sakarvottorð