

Sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við kvennadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Starfshlutfall er 60-89% og er starfið laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem boðleiðir eru stuttar og tækifæri til að taka virkan þátt í faglegri þróun, gæðastarfi og öflugri teymisvinnu.
Um starfseininguna
Á deildinni starfar samstilltur hópur sérfræðilækna í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir þar sem lögð er áhersla á þverfaglega samvinnu. Fjölbreytt og öflug starfsemi á sviði kvensjúkdómaaðgerða fer fram á skurðstofum flesta daga vikunnar. Veitt er sérhæfð fæðingaþjónusta þar sem konur geta fætt við fullar 37 vikur. Aðgangur er að skurðstofum þar sem svæfingalæknar eru á vakt allan sólarhringinn. Svæfingalæknar HVE eru þjálfaðir í meðferð nýbura og starfa í góðri samvinnu við nýburalækna á Vökudeild Landspítala.
-
Fæðingaþjónusta og mæðravernd
-
Göngudeildarþjónusta
-
Skurðaðgerðir
-
Vaktþjónusta á fæðinga- og kvensjúkdómadeild
-
Þátttaka í gæðastarfi og faglegri þróun
-
Þáttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun sérnámslækna og önnur sérverkefni í samráði við yfirlækni
-
Sérfræðiviðurkenning í kvensjúkdóma- og fæðingalækningum og gilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
-
Bakvaktarfærni
-
Góð samskiptahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
-
Jákvæðni, lipurð og áreiðanleiki í starfi
-
Æskilegt að hafa góða íslensku- og enskukunnáttu
-
Réttur áskilinn til að hafna umsóknum sem ekki uppfylla skilyrði
Íslenska
Enska










