Icelandair
Icelandair
Icelandair

Sérfræðingur í fjár- og áhættustýringu

Fjár- og áhættustýring Icelandair ber m.a. ábyrgð á fjármögnun, daglegum greiðslum og virkri lausafjárstýringu samstæðunnar. Deildin á og rekur áhættu- og áhættustýringarstefnur Icelandair í samræmi við stefnumörkun stjórnar, skipuleggur, boðar og ber ábyrgð á fundum og fundargerðum áhættunefndar, þróar og viðheldur áhættustýringarkerfi fyrir samstæðuna og ber ábyrgð á viðeigandi upplýsingagjöf til stjórnenda.

Sérfræðingurinn mun vinna að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum í tengslum við ábyrgð deildarinnar sem þjónustar alla samstæðuna sem og ytri aðila. Fjármálasvið Icelandair er á umbótavegferð og mun viðkomandi fá tækifæri til að móta framtíðina með okkur.

Leitað er að ábyrgum einstaklingi með reynslu af fjármálamarkaði. Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðumaður fjár- og áhættustýringar.

Helsta ábyrgð:

· Lausafjárstýring og -vöktun, sjóðstreymisspár og greiningar

· Greiningar á og eftirlit með fjárhagslegri áhættu og mildunaraðgerðum þar að lútandi

· Gerð áhættumata, atvikaskráning og skýrslugjöf er varða heildstæða áhættustýringu (e. enterprise risk) og rekstrarsamfellu (e. business continuity)

· Skipulagning og gagnaöflun fyrir fundi áhættunefndar

· Samskipti við lánveitendur, eignastýringaraðila og mótaðila í fjármálagerningum

· Samvinna og ráðgjöf við aðrar deildar fyrirtækisins um áhættu og fjárhagslega

áhrifákvarðanatöku

· Sérhæfð greiningarverkefni í samráði við yfirmann

Lykilhæfni:

· Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem fjármál fyrirtækja, hag-, verk- eða tölfræði. Framhaldsmenntun er kostur.

· 2-4 ára starfsreynsla af fjármálamarkaði, áhættustýringu og/eða greiningarvinnu sem nýtist í starfi

    • Reynsla af notkun fjárstýringarkerfis og/eða forritunarvinnu/sjálfvirknivæðingu er kostur

· Hæfni í að greina tölulegar upplýsingar og setja þær fram með aðgengilegum hætti

· Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði

· Ástríða fyrir umbótum og gæðum gagna

· Forvitni og gagnrýnið hugarfar

· Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026. Umsóknum skal fylgjaferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veita:

Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður Treasury, Risk Management & Strategic Procurement, [email protected]

Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

*** English***

Specialist in Treasury and Risk Management

Icelandair’s Treasury and Risk Management department oversees the Group’s financing, daily cash and liquidity management, payments, and cash flow forecasting. It manages hedging activities for fuel, interest rates, and foreign currency, maintains relationships with financial institutions, and supports the preparation of the Group’s financial statements. The department also owns Icelandair’s risk management policies, leads and governs the Risk Committee, develops and maintains the Group’s enterprise risk management framework, and ensures appropriate risk‑related reporting and disclosure to management.

The specialist will work on diverse projects relating to the responsibilities of the department which services the entire group as well as external parties. Icelandair's Finance Division is on an optimization journey granting the person an opportunity to shape the future with us.

We are seeking a responsible individual with experience in financial markets. The specialist reports to the Director of Treasury and Risk Management.

Main responsibility:

· Monitor daily cash positions, forecast cash needs, and optimize short‑term investments across multiple currencies.

· Assessment and mitigation of financial risks

· Preparation of risk assessments, incident registration and reporting relating to enterprise risk management and business continuity

· Organization and gathering of data for Risk Committee meetings

· Communications with lenders, asset managers and counterparties in financial instruments

· Collaboration and consultation with other departments on risk and financial impact of decision-making

· Ad-hoc projects and analysis in consultation with supervisor

Key qualifications:

· University education fit for purpose, such as corporate finance, economics, engineering or statistics. A Master‘s degree is an advantage.

    • 2-4 years of work experience in financial markets, risk management and/or relevant analytical work

· Experience in Treasury Management Systems and/or programming is an advantage

· Strong analytical and data skills; ability to present findings in an accessible manner

· Disciplined work methods, independence and initiative

· Passion for data improvement and quality

· Curiosity and a critical mindset

· Clear communication skills in Icelandic and English

Please submit your application along with a CV and cover letter no later than 16th of March 2026.

For further information, please contact:

Sigrún Hjartardóttir, Director of Treasury, Risk Management & Strategic Procurement, [email protected]

Guðlaug Ólafsdóttir, People Manager, [email protected]

In accordance with the equal rights policy of Icelandair, all applicants regardless of gender are encouraged to apply.

Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur16. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar