

Hefur þú reynslu af endurskoðun?
KPMG er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila, skatta, lögfræði og viðskiptaráðgjafar. Á Íslandi starfa um 240 sérfræðingar á 12 starfsstöðvum um land allt. Fjölbreytt þekking og reynsla okkar gerir okkur kleift að þjónusta viðskiptavini í öllum stærðum og gerðum, bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera.
Hefur þú reynslu af endurskoðun?
KPMG leitar nú að metnaðarfullum sérfræðingum á sviði endurskoðunar, reikningsskila og skatta til að ganga til liðs við okkar öfluga teymi. Við leitum sérstaklega að einstaklingum sem hafa þegar öðlast góða starfsreynslu á sviðinu og vilja taka næsta skref á faglegum og framsýnum vinnustað þar sem þróun og gæði eru í fyrirrúmi.
Ef að þú hefur a.m.k. 2-5 ára reynslu og vilt starfa í umhverfi sem býður upp á áskoranir, ábyrgð og raunveruleg tækifæri til vaxtar þá viljum við endilega heyra frá þér. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Endurskoðun og þjónusta við fjölbreyttan hóp viðskiptavina KPMG.
• Vinna við reikningsskil og gerð og yfirferð ársreikninga.
• Skattskil og tengd verkefni ásamt ráðgjöf til viðskiptavina.
• Þátttaka í umbótaverkefnum, þróun verkferla og innleiðingu nýrra lausna.
• Verkstjórn og þjálfun nýliða eftir því sem við á.
• Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni
Hæfniskröfur:
• M.Acc gráða í reikningsskilum og endurskoðun.
• Að lágmarki 2-5 ára starfsreynsla af endurskoðun og reikningsskilum.
• Góð greiningarhæfni, öguð vinnubrögð og góð samskiptahæfni.
• Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.
Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Tækifæri til að læra af og starfa með leiðandi sérfræðingum hjá KPMG hérlendis og erlendis.
- Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og fjölbreyttum velferðarúrræðum.
- KPMGfit: Æfingar undir handleiðslu þjálfara tvisvar í viku í hádeginu í Reykjavík.
- Aðgengi að golfklúbbi með aðgengi að völlum víðs vegar um landið.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra ásamt sérstökum fæðingarorlofsstyrk.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2026.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar).
Nánari upplýsingar veita:
Magnús Jónsson, sviðsstjóri endurskoðunarsviðs í [email protected]
Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum í [email protected]
Íslenska
Enska










