Activity Stream
Activity Stream
Activity Stream

Sérfræðingur í bókhaldi

Activity Stream leitar að reyndum bókara í 50% starf til að taka þátt í öflugu fjármálateymi alþjóðlegs hugbúnaðarfyrirtækis. Við leitum að einstaklega skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi og skilningi á rekstri og fjárhag, sem vill starfa í alþjóðlegu og hraðvirku umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt bókhald og almennar afstemmingar

  • Gerð reikninga og aðstoð við innheimtu

  • Aðstoð við skýrslugerð

  • Samskipti við lánardrottna, viðskiptavini og erlenda samstarfsaðila

  • Önnur tilfallandi verkefni, t.d. þátttaka í umbótaverkefnum, sjálfvirknivæðingu og innleiðingu nýrra ferla

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. bókhaldi, reikningshaldi eða viðskiptafræði

  • Reynsla af Business Central eða sambærilegu kerfi er kostur

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta, þar á meðal Excel

  • Frumkvæði, nákvæmni og fagleg vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni og jákvætt hugarfar

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er sjálfstæður og ábyrgur í vinnubrögðum

  • Getur sinnt fjölbreyttum verkefnum og tekist á við fjölverkavinnslu

  • Nýtur þess að vinna í teymi

  • Hefur áhuga á tækni- og hugbúnaðargeiranum og vill taka þátt í að byggja upp ferla í ört vaxandi fyrirtæki

Auglýsing birt7. janúar 2026
Umsóknarfrestur26. janúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar