
Skatturinn
Skatturinn fer með álagningu og innheimtu skatta, gjalda og tolla auk þess að sinna eftirliti með skattskilum og viðskiptum og flutningum yfir landamæri.
Starf í bókhaldi í deild fjármála
Skatturinn leitar að áhugasömum aðila til að starfa með öflugum hópi starfsfólks á mannauðs- og fjármálasviði í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík. Deild fjármála heyrir undir mannauðs- og fjármálasvið sem er stoðsvið sem ber ábyrgð á fjármálum, rekstri og mannauðsmálum stofnunarinnar og styður stjórnendur og starfsfólk við að ná markmiðum hennar með skilvirkri stjórnsýslu.
Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um fjölbreytt verkefni er að ræða á sviði bókhalds, afstemminga, uppgjörs og upplýsingagjafar til stjórnenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði bókhalds eða viðskipta. Háskólapróf og/eða viðurkenning sem bókari er kostur.
- Haldbær reynsla af færslu bókhalds. Reynsla af bókhaldskerfi í Orra (bókhaldskerfi ríkisins) er kostur
- Góð greiningarhæfni og færni í miðlun upplýsinga
- Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
- Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar.
- Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt8. janúar 2026
Umsóknarfrestur19. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 6
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bókhald
Hagvangur

Aðalbókari
Eykt

Bókari
KFUM og KFUK á Íslandi

Bókari og Uppgjörsaðili
Fjárheimar ehf.

Sérfræðingur í bókhaldi
Activity Stream

Sérfræðingar í bókhaldi og/eða uppgjörum
Löggiltir endurskoðendur ehf

Sérfræðingur á fjármálasviði - bókhald
First Water

Gjaldkeri - Innheimtufulltrúi
Avis og Budget

Bókari með reynslu – Taktu þátt í vexti og þróun
Langisjór | Samstæða

Bókari hjá Bláskógabyggð
Bláskógabyggð

Bókari í hlutastarfi (50–80%)
Deluxe Iceland

Bókari 50% starf
Pizzan