

Sérfræðingur á sviði góðra stjórnarhátta
PwC leitar að metnaðarfullum einstakling með sterka samskiptarhæfni sem hefur áhuga á fyrirtækjarekstri, stjórnarháttum og áhættustýringu.
Helstu verkefni snúa að ráðgjöf til viðskiptavina á sviði góðra stjórnarhátta og framkvæmd úttekta og eftirlit á stjórnkerfum. Unnið er í nánu samstarfi við viðskiptavini og samstarfsfélaga í verkefnum.
Teymi áhættustýringar vinnur að ýmis konar sértækum úttektum og ráðgjöf á sviði góðra stjórnarhátta, áhættustýringar og innra eftirlits. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og starfsþjálfun allra í teyminu, en virk fræðslustefna er hjá PwC með reglulegum námskeiðum bæði innanhús sem og hjá samstarfsfélögum.
Starfið tilheyrir starfseiningu áhættustýringar og innri endurskoðunar sem heyrir undir endurskoðunarsvið.











