
Sérfræðingur á fjármálasviði
ÍSOR óskar eftir að ráða sveigjanlegan og drífandi einstakling í starf sérfræðings á fjármálasviði. Um fjölbreytt starf er að ræða á skemmtilegum og lifandi vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fjárhagslegt eftirlit verkefna, m.a. eftirlit og stuðningur við sviðs- og verkefnastjóra ÍSOR
- Umsjón með verkbókhaldi í Dynamics Business Central (áður Navision)
- Gerð tekjureikninga
- Þátttaka í þróunar- og umbótavinnu
- Greiningar og upplýsingagjöf til stjórnenda
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
- Færni í framsetningu fjármálaupplýsinga
- Þekking og reynsla af verkefnabókhaldi er æskileg
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð Excel- og tölvukunnátta. Þekking á Power BI er kostur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og drifkraftur
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Sveigjanleiki ásamt getu og vilja til að halda mörgum boltum á lofti í einu
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Við bjóðum:
- Þátttöku í fjölbreyttum verkefnum
- Vinnu í alþjóðlegu umhverfi
- Fjölskylduvænan vinnustað með sveigjanlegan vinnutíma
Um ÍSOR
Kjarnastarfsemi ÍSOR er víðtæk ráðgjöf á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðhita. Einnig sinnir ÍSOR rannsóknum, kennslu og fræðslu í jarðvísindum. ÍSOR leggur áherslu á jöfn tækifæri starfsfólks, ánægða og árangursmiðaða liðsheild og framþróun. Metnaður ÍSOR er að vera í fararbroddi þekkingar á sviði sjálfbærrar nýtingar jarðrænna auðlinda og virðisskapandi lausna sem miða að því að koma jörðinni og fólki til góða. Aðalstöðvar ÍSOR eru í Kópavogi og starfsstöð er á Akureyri.
Um er að ræða 100% starf á skrifstofu ÍSOR í Kópavogi. Umsóknarfrestur er til og með 8. september 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisáætlun ÍSOR og hvetjum við áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um. Launakjör taka mið af kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Nánari upplýsingar veita Helga Birna Jónsdóttir ([email protected]) og Birna Dís Bergsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225
Íslenska










