Byggðastofnun
Byggðastofnun

Sérfræðingur

Byggðastofnun leitar að öflugum liðsfélaga með brennandi áhuga á byggðamálum til starfa á þróunarsviði stofnunarinnar. Í starfinu felst umsjón með samningum um atvinnu- og byggðaþróun, framfylgd verkefna samkvæmt byggðaáætlun, gagnaöflun og úrvinnsla. Óskað er eftir áhugasömum og jákvæðum einstaklingi til að vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum á sviði byggðamála.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 100%. Staðsetning starfsins er á skrifstofu Byggðastofnunar á Sauðárkróki. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla og þekking af rannsóknum og greiningum
Reynsla af verkefnastjórnun
Frumkvæði, metnaður og hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi
Góð samskiptahæfni
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Kostur að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með samningum um atvinnu- og byggðaþróun
Þátttaka í verkefnastjórnun um framkvæmd byggðaaðgerða
Þátttaka í byggðarannsóknum
Samskipti við innlenda jafnt sem erlenda samstarfsaðila
Auglýsing birt9. september 2021
Umsóknarfrestur27. september 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sauðármýri 2, 550 Sauðárkrókur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar