
Gaflarar ehf.
Gaflarar ehf. eru rótgróið rafverktakafyrirtæki í Hafnarfirði. Hjá okkur starfar öflugur hópur rafvirkja og tæknifólks sem sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, iðnað og einstaklinga. Við leggjum áherslu á fagmennsku, traust samstarf, góða þjónustu og stöðuga þróun í takt við nýja tækni.
Rafvirkjar óskast
Við leitum að rafvirkjum með gilt sveinspróf sem leggja metnað í fagleg vinnubrögð og vilja taka þátt í fjölbreyttum verkefnum með öflugu teymi Gaflara.
Starfið felur í sér fjölbreytt raflagnaverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Verkefnin eru að mestu á höfuðborgarsvæðinu en geta einnig verið víðs vegar um landið eftir eðli verkefna. Við leggjum áherslu á sjálfstæð vinnubrögð, fagmennsku, örugga og góða þjónustu við viðskiptavini.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn raflagnavinna í nýbyggingum og eldri mannvirkjum.
- Uppsetning, viðhald og bilanagreining rafbúnaðar.
- Þjónustuverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
- Vinna samkvæmt teikningum, verklýsingum og gildandi reglum.
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila á verkstað.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni.
- Sterkan og samheldinn vinnustað.
- Tækifæri til starfsþróunar og símenntunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gilt sveinspróf í rafvirkjun.
- Gilt ökuskírteini.
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
- Góð samskiptahæfni.
- Hreint sakavottorð.
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lónsbraut 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
Rafvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðhaldsstjóri hjá Víking brugghús
Víking Brugghús CCEP á Íslandi

Rafvirki
Olíudreifing þjónusta

Tæknifólk í brunaviðvörunarkerfi
Securitas

Rafvirkjar / Electricians Reyðarfjörður
VHE

Rafvirki óskast
Rýmd ehf

Rafvirki - Eldisgarður
Samherji fiskeldi ehf.

Kælivélamaður / Vélfræðingur
Hitastýring hf.

Rafviki / Rafvirkjanemi á Egilsstöðum
Útslag ehf.

Við leitum af reynslu miklum Rafvirkja í okkar lið
Raflist

Starfsmaður í Þjónustudeild
Landstólpi ehf

Rafvirki (Electrician)
Borealis Data Center ehf.

Innviðir framtíðarinnar - Tæknistörf í gagnaveri á Blönduósi.
Ofar ehf