

Ráðgjafi í ráðstefnum og viðburðum | Conference and Event Consultant
Ertu að leita að skemmtilegu og fjölbreyttu starfi í dínamísku og alþjóðlegu umhverfi? Hilton Reykjavík leitar að jákvæðum og þjónustulunduðum starfsmanni sem vill verða hluti af metnaðarfullu teymi og taka þátt í að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.
Starfið er fjölbreytt og gefur góð tækifæri til að öðlast víðtæka þekkingu á starfsemi hótelsins, sérstaklega á sviði hópa og viðburða.
Starfssvið
- Úrvinnsla og utanumhald bókana frá söludeild.
- Móttaka viðskiptavina og kynning á þjónustu hótelsins.
- Veita viðskiptavinum upplýsingar og framúrskarandi þjónustu.
- Umsjón með hópum og eftirfylgni með bókunum og dvöl þeirra.
- Samvinna við söludeild og aðrar deildir til að tryggja skilvirkt ferli og góða upplifun viðskiptavina.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
- Jákvætt viðmót og metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Snyrtimennska, stundvísi og sveigjanleiki.
- Áhugi á fjölbreyttum verkefnum og vilji til að læra og þróast í starfi.
- Þekking á Opera Sales & Catering er kostur en ekki skilyrði.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Staðsetningin í hjarta borgarinnar, nálægt Laugardalnum, íþrótta- og afþreyingarsvæðum og miðbæ Reykjavíkur, gerir hótelið að eftirsóttum valkosti fyrir viðskiptaferðalanga, hópa og ferðamenn.
Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum
Fagmennska – Hugrekki – Samvinna - Umhyggja
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
---------------
Are you looking for an exciting and varied role in a dynamic and international environment? Hilton Reykjavík is looking for a positive and service-minded individual to join our team as a Conference and Event Consultant. In this role, you will support the Sales Department with bookings, group coordination and follow-up, while helping to ensure excellent service and a smooth experience for our clients.
This is a diverse role offering a great opportunity to gain broad knowledge of hotel operations, particularly in relation to groups and events.
Key Responsibilities
- Processing and managing bookings from the Sales Department.
- Welcoming clients and introducing them to the hotel’s services.
- Providing clients with information and excellent service.
- Coordinating and following up on groups, bookings and their stay.
- Working closely with the Sales Department and other departments to ensure a smooth and efficient process and an excellent client experience.
- Other duties as required.
Skills and Qualifications
- Excellent communication skills and a strong service mindset.
- A positive attitude and a commitment to providing excellent service.
- Initiative, strong organisational skills and the ability to work independently.
- Professional appearance, punctuality and flexibility.
- Interest in varied responsibilities and a willingness to learn and develop.
- Knowledge of Opera Sales & Catering is an advantage but not required.
- Good command of Icelandic and English.
Located in the heart of Reykjavík, close to Laugardalur, sports and recreational facilities, and the city centre, the hotel is a popular choice for business travellers, groups, and leisure travellers alike.
The values of Íslandshótel are:
Professionalism - Courage - Cooperation - Care
All inquiries and applications are handled confidentially.
Enska
Íslenska










