VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Ráðgjafi VIRK á Akureyri

VIRK leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf ráðgjafa. Um er að ræða mjög krefjandi, fjölbreytt en jafnframt gefandi starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar á vinnumarkaði. Umsækjandi þarf að hafa víðtæka reynslu og þekkingu á einstaklingsráðgjöf og atvinnulífi. Æskilegt er að umsækjandi geti byrjað sem fyrst. Um fullt starf er að ræða. Skilyrði er mjög góð kunnátta í íslensku. Starfsstöð er á skrifstofu Einingar - Iðju á Akureyri ásamt þremur öðrum ráðgjöfum VIRK.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu

Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum

Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK

Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði

Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar

Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar

Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund

Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

Skipulagshæfni og kostnaðarvitund

Góð þekking á vinnumarkaði

Hreint sakavottorð

Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Auglýsing birt29. febrúar 2024
Umsóknarfrestur10. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skrifstofa Einingar-Iðju, Skipagötu 14, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar