Klettabær
Klettabær
Klettabær

Ráðgjafi í búsetuúrræði Klettabæjar

Klettabær leitar að öflugum ráðgjafa til starfa sem brennur fyrir velferð barna og ungmenna.

Klettabær starfrækir sértæk búsetuúrræði, hvíldardvalir auk fjölbreyttrar og einstaklingsmiðaðrar þjónustu í Þjónustumiðstöð Klettabæjar. Megin markhópur Klettabæjar eru börn og ungmenni með margþættan vanda sem þurfa sértæk úrræði og/eða einstaklingsmiðaða nálgun og þjónustu. Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum ungs fólks til þátttöku og lífsgæða í samfélaginu.

Í Klettabæ ríkir mikil starfsánægja og góður starfsandi. Unnið er eftir hugmyndafræðinni áfalla- og tengslamiðaður stuðningur.

Einkennisorð Klettabæjar eru ástríða, fagmennska, gleði og umhyggja.

Ráðgjafi tekur þátt í meðferð og daglegum störfum undir leiðsögn yfirmanna. Hann þarf að geta unnið sjálfstætt og í teymi og tileinka sér þá meðferðarnálgun og verklagsreglur sem unnið er eftir hverju sinni. Starfið krefst góðrar samvinnu og samstarfs við stjórnendur og alla þá sem koma að málum þjónustunotanda.

Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum
Færni í mannlegum samskiptum
Sveigjanleiki, frumkvæði og nákvæmni í starfi
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Skipulagshæfni
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á að virkja einstaklinga til sjálfstæðis
Veita persónulega þjónustu og stuðning í daglegu lífi einstaklinga sem sniðin er að þörfum og væntingum hvers og eins
Er fyrirmynd allra þjónustunotenda
Tekur þátt í daglegu lífi þeirra og framfylgir þjónustuáætlunum og markmiðum
Fylgist með ástandi húsnæðis og húsbúnaðar og ber ábyrgð á að það sé hreint og snyrtilegt á hverri vakt
Tileinkar sér allar þær verklagsreglur sem unnið er eftir innan úrræðisins
Gengur í öll þau verk sem yfirmenn hans kunna að fela honum og ber ábyrgð á verkefnum sínum
Auglýsing birt29. apríl 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarhraun 22, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar