Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

PISA - fyrirlögn og kóðun (höfuðborgarsvæðið)

Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að starfsfólki til að vinna við PISA (Programme for International Student Assessment), alþjóðlega menntarannsókn á vegum OECD.

Verkefnið felur í sér fyrirlögn í 10. bekkjum grunnskóla á höfuðborgarsvæði og nágrenni ásamt kóðun á svörum nemenda. Unnið verður frá 11. mars fram í byrjun júní. Um verktakavinnu er að ræða.

Verkefnið krefst öryggis í framkomu, reynslu af starfi með börnum eða unglingum og góðrar íslenskukunnáttu. Háskólamenntun er æskileg og umsækjendur þurfa að hafa ökuréttindi. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar. Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Gunnhildi Steinarsdóttur í gegnum [email protected] eða í síma 545 9500.

Auglýsing birt11. febrúar 2025
Umsóknarfrestur20. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 33, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar