Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara

Mánahvoll er ungbarnaleikskóli í Garðabæ. Við leggjum áherslu á samvinnu, traust, gleði og sköpun þar sem það endurspeglast í öllu daglegu starfi leikskólans.

Dagskipulagið byggir á þörfum barnanna og leiðum til að tryggja vellíðan þeirra. Áhugasömum gefst tækifæri til að starfa í lærdómssamfélagi þar sem sjónum er beint að faglegri þróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með og undir deildarstjóra
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.

Hlunnindi í starfi
  • Á Mánahvolier vinnuskyldan í fullu starfi 36 stundir. Vikulegur vinnutími er 38 stundir og er tveimur klukkustundum safnað upp í frítöku vegna vetrar-, páska- og jólafría. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar.
  • Forgangur á leikskóla fyrir börn starfsfólks með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsfólk með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 0,25% stöðugildi vegna snemmtækra íhlutunar inn á hverri deild.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30 mánud-fimmtud og 7:30-16:00 á föstudögum.
  • Fimm skipulagsdagar á ári.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið árskort í sundlaugar bæjarins, menningarkort í Hönnunarsafnið og bókasafnskort og eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk.
Auglýsing birt10. febrúar 2025
Umsóknarfrestur13. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vífilstaðavegur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar