OK
OK
OK

OK leitar að Vörustjóra Prentlausna og Vaxtar

Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum vörustjóra prentlausna sem vill taka virkan þátt í spennandi vegferð framundan í uppbyggingu, vörustýringu, nýsköpun og sölu til viðskiptavina fyrirtækisins. Viðkomandi ber ábyrgð á prentlausnum OK, sölu og sókn í samstarfi við söluteymi, aðstoð við samningagerð, ráðgjöf til viðskiptavina, samskipti við birgja og vörustýringu og þróun prentlausna.

OK vinnur fyrir mörg af stærstu og kröfuhæstu fyrirtækjunum þegar kemur að upplýsingatækni og lausnaráðgjöf og eru verkefni starfsins því fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg.

Hjá OK starfar fjölbreyttur hópur fólks og hvetjum við öll sem uppfylla hæfnikröfur og hafa áhuga á starfinu til að sækja um, óháð kyni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með vöruúrvali prentbúnaðar og prentlausna, þar á meðal prenturum, fjölnotatækjum, rekstrarvörum og tengdum lausnum.
  • Samskipti og samstarf við birgja og innlenda samstarfsaðila.
  • Greining á markaði, samkeppni og þörfum viðskiptavina til að tryggja rétta vöru- og lausnasamsetningu.
  • Stuðningur við söluteymi með vöruþekkingu, lausnaráðgjöf og þátttöku í tilboðsgerð.
  • Umsjón með verðlagningu, framlegð og vörustefnu.
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra vara og lausna, þar á meðal kynningum og fræðslu.
  • Samstarf við markaðsdeild um markaðsskilaboð og söluátak.
  • Eftirfylgni með frammistöðu vöruflokks og umbótaverkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. í viðskiptafræði, tækni-, markaðs- eða rekstrartengdum greinum.
  • Reynsla af vörustjórnun, sölustuðningi eða B2B lausnum er kostur.
  • Þekking eða áhugi á prentlausnum, upplýsingatækni eða tengdum UT-lausnum er æskilegur.
  • Greiningarhæfni og skilningur á rekstri, framlegð og virðiskeðju.
  • Góð samskiptahæfni og færni í samstarfi.
  • Viðkomandi þarf að vera skipulagður, hugmyndaríkur, sjálfstæður og lausnamiðaður.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar