
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyingar sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Sölufulltrúar hjá Símanum
Við leitum að duglegum og metnaðarfullum einstaklingum til að ganga til liðs við Söluráðgjöf á einstaklingssviði fyrirtækisins. Um er að ræða spennandi starf sem felur í sér sölu og ráðgjöf til viðskiptavina Símans í gegnum síma, netspjall og tölvupóst. Við leitum að einstaklingum í framtíðarstarf.
Ef þú brennur fyrir sölu og hefur mikinn áhuga og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á sölu
- Einstök samskiptahæfni og framúrskarandi þjónustulund
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð hugsun
- Jákvætt viðhorf og geta til að stuðla að góðum liðsanda
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun er æskileg
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Fríðindi í starfi
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Námsstyrkir
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Gleraugnastyrkur
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraSamskipti í símaSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Fullt starf í verslun - Framtíðarstarf
Zara Smáralind

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Söluráðgjafi í Fagmannaverslun
Húsasmiðjan

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North