Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Verslunarstjóri

Tilgangur starfs
• Ná markmiðum um sölu, þjónustugæði, ánægju viðskiptavina, jákvæða ímynd fyrirtækisins og sterka samvinnu starfsfólks.
• Veita teyminu skýra stefnu og tryggja hagkvæma og vel skipulagða mönnun.
• Valdefla söluteymið til að taka ákvarðanir innan síns ábyrgðarsviðs og stuðla þar með að ánægðari og tryggari viðskiptavinum.
• Tryggja aðgengi og nálægð við bæði viðskiptavini og teymið.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Viðskiptavinir og sala
• Tryggja skjót og markviss ákvarðanatöku með nærveru á sölugólfi og góðu sambandi við söluteymið; vera fyrirmynd í þjónustu og framkomu.
• Hvetja og þjálfa teymið í vöruþekkingu, sölutækni, samskiptafærni og notkun á stafrænnar tækni 
• Bera ábyrgð á lausn kvartana og styðja við lausn ágreiningsmála milli viðskiptavina og starfsmanna.
• Fylgja staðbundnum verklagsreglum og tryggja að teymið geri slíkt hið sama.
• Skipuleggja vaktir þannig að jafnvægi náist milli þjónustugæða og kostnaðarhagkvæmni.
Teymisstjórnun
• Tryggja gott upplýsingaflæði, skýr markmið og raunhæfar væntingar.
• Valdefla teymið til að taka ákvarðanir innan síns ábyrgðarsviðs og styðja það í að ná markmiðum.
• Greina árangur og fagna sameiginlegum sigrum.
• Stuðla að jákvæðri og samvinnuþrunginni teymismenningu og styðja við persónulegan og faglegan vöxt starfsmanna.
• Leiða teymið í gegnum breytingar og styðja við lausn ágreinings.
• Tryggja að mönnun sé i takt við þarfir hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og tæknileg færni
• Lokið námi í þjónustu- eða verslunargeira og/eða sambærileg starfsreynsla.
• Þekking á vöruframboði er kostur.
• Reynsla af stjórnun í verslun eða þjónustu.
• Góð enskukunnátta; kunnátta í fleiri tungumálum er kostur.
Mannleg færni og eiginleikar
• Fyrirmynd í framkomu og vinnubrögðum; hæfni til að þjálfa teymið til sjálfstæðrar ákvarðanatöku.
• Frumkvæði og hæfni til að setja og fylgja eftir markmiðum byggðum á lykilmælikvörðum (KPI).
• Getu til að starfa undir álagi og leiða teymið í gegnum breytingar.
• Opin og þjónustulunduð nálgun gagnvart viðskiptavinum.
• Sterk þjónustuhegðun og innri hvati til að veita framúrskarandi þjónustu.
• Markmiðadrifinn liðsheildarleikmaður.

Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar