
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Söluráðgjafi - Sumarstarf
Steypustöðin leitar að sterkum og drífandi söluráðgjafa til að ganga til liðs við okkur í sumar. Ef þú býrð yfir framúrskarandi söluhæfileikum og mikilli þjónustulund gæti þetta verið hið fullkomna starf fyrir þig.
Helstu verkefni felast í að veita upplýsingar og þjónustu í gegnum síma, taka á móti viðskiptavinum á skrifstofu/útibúi fyrirtækisins og útbúa tilboð fyrir þær vörur og þá þjónustu sem Steypustöðin býður upp á. Mikilvægt er að þú hafir framúrskarandi samskiptahæfni, vinnir vel í teymi með öðrum deildum innan fyrirtækisins og sért jákvæð(ur) gagnvart fjölbreyttum áskorunum sem upp kunna að koma.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Svara símtölum frá viðskiptavinum
- Móttaka viðskiptavina á skrifstofu/útibúi félagsins
- Svara fyrirspurnum viðskiptavina og veita framúrskarandi þjónustu
- Útbúa tilboð fyrir vörur og þjónustu sem Steypustöðin býður upp á
- Fylgja eftir tilboðum til viðskiptavina
- Samstarf við framleiðslu- og fjármálateymi um sölutengd mál
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða-og reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölustarfi eða/og þjónustu er kostur
- Framúrskarandi söluhæfileikar og mikil þjónustulund
- Góð samskiptafærni og jákvætt viðhorf
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg
- Góð tölvukunnátta og færni í notkun sölukerfa
Auglýsing birt27. mars 2026
Umsóknarfrestur21. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hringhella 2, 221 Hafnarfjörður
Malarhöfði 10, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSölumennskaÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Rauði krossinn óskar eftir öflugum aðila í fjáröflun
Rauði krossinn á Íslandi

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölufulltrúi - Timburverslun BYKO
Byko

Sölufulltrúar óskast í Icewear
ICEWEAR

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Fullt Starf í Versluninni Sportís
Sportís ehf

Sölumaður nýrra bíla Leapmotor, Jeep, RAM, Fiat atvinnubílar
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson

Innrammari / sölumaður
Innrammarinn ehf.

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf