Norður & Co ehf.
Norður & Co ehf.
Norður & Co ehf.

NORÐUR & CO EHF. LEITAR AÐ SÖLU- OG MARKAÐSSTJÓRA

Norður & Co óskar eftir að ráða metnaðarfullan, drífandi og skapandi sölu- og markaðsstjóra sem vill taka þátt í að efla vörumerkið, auka sölu og styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins bæði á Íslandi og erlendis.

Ef þú hefur brennandi áhuga á sölu, markaðsmálum og uppbyggingu sterks íslensks vörumerkis, þá viljum við heyra frá þér.

Norður & Co ehf. er framleiðslufyrirtæki sem framleiðir gæða saltflögur, undir nafninu Norðursalt. Framleiðslan er á Reykhólum við Breiðafjörð, en skrifstofur félagsins eru í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Efla sýnileika og styrkja vörumerki Norður Salt

  • Þátttaka í kynningum, sýningum og markaðsstarfi

  • Styðja við sölu á innlendum og erlendum mörkuðum

  • Greina markað, samkeppni og þarfir viðskiptavina

  • Finna ný viðskiptatækifæri og efla tengsl við viðskiptavini, dreifingaraðila og   samstarfsaðila

  • Eftirfylgni með pöntunum og samskipti við viðskiptavini

  • 2-3 ferdir erlendis á ári 

  • Koma fram fyrir hönd fyrirtækisins á faglegan og traustan hátt

  • Vinna náið með stjórnendum að áframhaldandi vexti og þróun fyrirtækisins

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu, markaðsmálum, viðskiptaþróun eða vörumerkjastjórnun

  • Framúrskarandi samskipta- og samningahæfni

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni í starfi

  • Sterk viðskiptaleg hugsun og árangursdrifin vinnubrögð

  • Áhugi á matvælum og gæðavörum

  • Góð íslensku- og enskukunnátta / dönskukunnátta 

  • Menntun á sviði viðskipta, markaðsmála eða sambærilegt

Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur14. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar