Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Öflugur sjúkraþjálfari í hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna hreyfiseðla- og stoðkerfismóttöku. Um er að ræða 50-70% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.


HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, góða samvinnu fagstétta og sveiganlegan vinnutíma. Á stöðinni starfa heimilislæknar, sálfræðingur, hjúkrunarfræðingar ásamt öðru heilbrigðisstarfsfólki og riturum.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem veitt er fyrstu línu þjónusta.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Tekur á móti skjólstæðingum sem hafa fengið uppáskrifaðan hreyfiseðil frá heilbrigðisstarfsmanni og framkvæmir viðeigandi mælingar, setur upp hreyfiáætlun í samráði við skjólstæðing og fylgir henni eftir
  • Metur og veitir ráðgjöf varðandi stoðkerfisvanda skjólstæðinga skv tilvísun frá lækni
  • Greinir, metur og vinnur sjálfstætt að úrlausn mála eftir þeim gögnum sem fyrir liggja
  • Skráir og fylgir eftir meðferð skjólstæðinga
  • Nýtir faglega þekkingu til að forgangsraða og leysa viðfangsefni
  • Veitir fræðslu til starfsfólks heilsugæslunnar
  • Leiðbeinir samstarfsfólki
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Löggilt sjúkraþjálfarapróf
  • Þriggja ára starfsreynsla sem sjúkraþjálfari
  • Þekking á áhugahvetjandi samtalstækni
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing stofnuð16. febrúar 2024
Umsóknarfrestur4. mars 2024
Staðsetning
Suðurströnd 14, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar