Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Garðabæ

Heilsugæslan Garðabæ leitar að jákvæðum og drífandi heilbrigðisgagnafræðingi til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun.

Um er að ræða ótímabundið 80% starf og þarf viðkomandi að geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði til starfa, fáist ekki heilbrigðisgagnafræðingur i starfið.

Á Heilsugæslunni Garðabæ starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á ritun og umsýslu sjúkragagna vegna skjólstæðinga og í samvinnu við annað samstarfsfólk
  • Sér um móttöku, skráningu, skönnun og meðferð gagna í sjúkraskrárkerfinu Sögu
  • Sinnir lyfjaendurnýjun í lyfjasíma og Heilsuveru
  • Kemur að flokkun og svörun fyrirspurna í Heilsuveru
  • Samskipti við skjólstæðinga, aðrar heilbrigðisstofnanir, tryggingarfélög, lögfræðinga og fleiri
  • Aðstoðar í móttöku eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í heilbrigðisgagnafræði 
  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Reynsla af ritarastarfi kostur
  • Þekking og reynsla af upplýsinga- og skjalastjórnun
  • Reynsla og þekking af Sögukerfi æskilegt
  • Reynsla af Heilsugátt kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnáttu
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt25. júlí 2024
Umsóknarfrestur15. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar