Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Geðheilsuteymi fangelsa óskar eftir hjúkrunarfræðingi

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi við Geðheilsuteymi fangelsa. Um er að ræða 40-60% tímabundið starf til eins árs. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi og líflegum vettvangi. Ekki skemmir fyrir ef viðkomandi hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í geðþjónustu heilsugæslunnar. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu, batahugmyndafræði, skaðaminnkun og vinnu þvert á stofnanir heilbrigðis- og réttarvörslukerfis. Teymið sinnir þjónustu á landsvísu og starfar í fangelsum á Litla Hrauni, Hólmsheiði, Sogni og Kvíabryggju. Teymið fylgir einnig eftir einstaklingum á reynslulausn.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir klínísku starfi 
  • Ber ábyrgð á ferli skjólstæðings í teyminu 
  • Tengir við aðra þjónustu og kemur málum í viðeigandi farveg 
  • Sinnir þróunarstarfi og umbótastarfi í þágu skjólstæðinga 
  • Stuðlar að geðheilbrigði og almennri heilsueflingu 
  • Vinnur náið með öðru heilbrigðisstarfsfólki sem veitir almenna heilbrigðisþjónustu innan fangelsanna 
  • Sinnir samstarfi og hefur samráð við sérfræðinga í geðheilbrigðismálum og velferðarþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af vinnu með einstaklinga með geð- og fíknivanda kostur 
  • Reynsla af afeitrun og fráhvarfsmeðferð kostur 
  • Þekking og reynsla af aðferðum skaðaminnkunar kostur 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni 
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun 
  • Góð færni í að vinna í þverfaglegu teymi 
Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt23. júlí 2024
Umsóknarfrestur7. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar