Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Geðheilsumiðstöð barna - tímabundið starf

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með geð- og taugaþroskaraskanir? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að félagsráðgjafa til starfa í greiningarteymi hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi við ráðgjöf og greiningu barna með geð- og taugaþroskaraskanir. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og taugaþroskaraskana barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 100% tímabundið starf í eitt ár og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða sem fyrst. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi við meðferð og ráðgjöf vegna barna með geð- eða taugaþroskaröskun.  Félagsráðgjafi tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. Félagsráðgjafi hefur enn fremur það hlutverk að veita foreldrum stuðning varðandi félagsleg réttindi og úrræði og eiga samskipti við aðra þjónustuaðila innan félags-, velferðar- og skólakerfis. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi í félagsráðgjöf gefið út af embætti landlæknis 

  • Þekking og reynsla af vinnu með börnum og fjölskyldum þeirra 

  • Þekking á geð og taugaþroskaröskunum    barna og unglinga 

  • Þekking og reynsla af þjónustukerfum sem sinna börnum og fjölskyldum þeirra, t.d. er þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga mikill kostur. 

  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi, frumkvæði og öguð vinnubrögð 

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi 

  • Góð íslenskukunnátta 

  • Góð almenn tölvukunnátta 

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar