Edico
Edico
Edico

Öflugur forritari

Við erum að leita að öflugum aðila til að sinna forritun og þjónustu á lausnum Edico sem eru handtölvulausnir og afgreiðslulausnir. Reynsla í faginu er mikill kostur. Viðkomandi þarf að geta átt í samskiptum við viðskiptavini og geta unnið sjálfstætt í fjölbreyttum verkefnum. Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af viðmótshönnun.

Við erum með góða starfsaðstöðu og reynslumikla starfsmenn. Edico leggur mikla áherslu á að hafa ánægju af starfinu og að einstaklingar geti vaxið í starfi með möguleika á frekari menntun. Þó fæstir þekki til Edico þá þekkja flestir landsmenn til þeirra lausna sem við útvegum, enda eru þær notaðar hjá helstu fyrirtækjum landsins. Edico er metnaðarfullt fyrirtæki sem sérhæfir sig í afgreiðslu- og þjónustulausnum sem eru oft séraðlagaðar að þörfum hvers viðskiptavinar. Það er gefandi að geta hjálpað viðskiptavinum okkar þannig að það beri sýnilegan árangur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forritun (full stack) á Edico hugbúnaðarlausnum (Edico Handheld og Edico Visit)
  • Þarfagreining og ráðgjöf
  • Innleiðing á sérlausnum fyrir viðskiptavini
  • Bilanagreining og lagfæringar hjá viðskiptavinum
  • Verkefnastýra eigin innleiðingarverkefnum
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Samskipti við erlenda birgja
  • Kynna sér nýjungar og vinna að vöruþróun
  • Þjónusta á lausnum Edico hjá viðskiptavinum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð kunnátta og reynsla á helstu forritunarmálum (C#, JavaScript o.fl.)
  • Góð kunnátta og reynsla af gagnagrunnum og SQL
  • Góð þekking á netkerfum
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt
  • Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar
  • Frumkvæði og metnaður
  • Góð enskukunnátta
Auglýsing birt23. desember 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Höfðabakki 3, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.JavaScriptPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar