Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Verkefnastjóri í Lánastýringu

Íslandsbanki leitar að skipulögðum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að gegna stöðu verkefnastjóra hjá Lánastýringu bankans á Viðskiptabankasviði. Viðkomandi mun leiða stafræn umbreytingar- og þróunarverkefni í lánaferlum fyrirtækja og í tengslum við rekstur lánanefnda bankans ásamt öðrum spennandi verkefnum er lúta að umgjörð fyrirtækjalána.

Ef þú hefur áhuga á starfsemi fjármálafyrirtækja, býrð yfir góðri reynslu af verkefnastjórnun, áhuga á útlánastarfsemi og hagnýtingu gervigreindar, þá gætir þú verið einstaklingurinn sem við leitum að. Þú munt vinna þvert á ábyrgðarsvið teymisins, í nánu samstarfi við vörueiganda og aðra útlánasérfræðinga ásamt stafrænum vöruteymum og bera ábyrgð á stafrænum innleiðingarverkefnum og ferlagreiningu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða stafræn þróunarferli og hafa yfirumsjón með stafrænum útlánaferlum fyrirtækjalána
  • Greina og meta tækifæri til að bæta stafræna útlánaferla með hagnýtingu gervigreindar
  • Utanumhald um gerð verkáætlana og yfirsýn með framgangi stafrænna verkefna 
  • Verkefnastjórn minni og stærri verkefna
  • Önnur tilfallandi verkefni er lúta að umgjörð fyrirtækjalána
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta, verkfræði eða tölvunarfræði
  • Reynsla af verkefnastjórnun, helst í fjármálageiranum eða tengdum iðnaði
  • Reynsla af vinnu með stafrænar lausnir
  • Frábærir skipulagshæfileikar, samskipta- og samstarfsfærni
  • Skipulögð og lausnamiðuð hugsun með áherslu á skilvirka framkvæmd
  • Hæfni til að miðla efni í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku
Auglýsing birt11. desember 2025
Umsóknarfrestur5. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar