
Náms-og kennslustjóri stoðþjónustu og tengiliður farsældar
Um er að ræða deildarstjórastarf náms-og kennslustjóra stoðþjónustu sem jafnframt er tengiliður farsældar. Starfsmaðurinn hefur m.a. umsjón með og annast í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra skipulag náms- og kennslu nemenda sem þurfa sérstakan stuðning eða nálgun í námi til lengri eða skemmri tíma.
Laus er til umsóknar frá og með 1. ágúst 2025 staða deildarstjóra í Austurbæjarskóla. Um er að ræða starf náms-og kennslustjóra stoðþjónustu (70%) auk tengiliðar farsældar (30%). Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn. Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám og samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott. Ráðningin er ótímabundin.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
- Hefur umsjón með og annast í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra skipulag náms- og kennslu nemenda sem þurfa sérstakan stuðning eða nálgun í námi til lengri eða skemmri tíma.
- Er næsti yfirmaður þeirra starfsmanna sem sinna stoðþjónustu.
- Vinna heildaráætlun um stuðning í námi og kennslu nemenda.
- Veitir kennurum faglegan stuðning og aðstoðar við gerð einstaklingsáætlana og einstaklingsnámskráa.
- Veitir starfsfólki stoðþjónustu faglegan stuðning og leiðsögn.
- Hefur umsjón með reglulegum skimunum sem kanna námsframvindu nemenda og áætlunum sem unnar eru í samræmi við niðurstöður þeirra.
- Á sæti í og fer fyrir þjónustuteymum þegar það á við.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Er tengiliður skólans við þjónustumiðstöð hverfisins, sálfræðinga, talmeinafræðinga og aðra sérfræðinga og stofnanir sem tengjast skólanum.
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara. Framhaldsmenntun.
- Áhugi, reynsla og hæfni til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir nemenda.
- Stjórnunarreynsla æskileg.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Fagleg vinnubrögð og metnaður.
- Frumkvæði, sveigjanleiki, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta.












