
Deildarstjóri eldra stigs skólaárið 2025 - 2026
Hólabrekkuskóli óskar eftir deildarstjóra eldra stigs skólaárið 2025 - 2026. Mikil gróska einkennir skólaþróun í Hólabrekkuskóla og áhersla er lögð á skapandi starf, teymiskennslu, fjölbreytta gagnreynda kennsluhætti og uppbyggileg samskipti. Leiðarljós skólans er virðing, gleði og umhyggja.
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur og 80 starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á teymiskennslu og mál og læsi.
Ef þú ert framsækinn fagmaður og hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur.
Deildarstjórneldra stigs.
Stýrir faglegu starfi út frá stefnu skólans.
Stýrir teymiskennslu á eldra stigi.
Sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi.
Vinnur að öflugu samstarfi innan og utan skólasamfélagsins.
Önnur verkefni sem deildarstjóra kunna að vera falin.
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
- Þekking og forystuhæfileikar til að leiða framsækna skólaþróun.
- Stjórnunarreynsla og/eða framhaldsmenntun í stjórnun æskileg.
- Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun.
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi C2 samskvæmt samevrópska matskvarðanum.
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur
- Frítt í sund með ÍTR kortinu
- Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu












